Nú eru miklar pælingar um stóðhestanotkun enda fer að líða að fyrstu folöldunum þetta árið. Við erum mjög spennt fyrir okkar folöldum en við fáum meðal annars undan Mídas frá Kaldbak, Óskasteini frá Íbishóli, Brest frá Lýtingsstöðum og síðan honum Hrannari okkar. Sumarið er ekki alveg ákveðið en mikið er úrvalið, erum búin að fletta okkur í gegnum stóðhestabókina en úrvalið er svo mikið að erfitt er valið, við munuð þó líklegast nota hann Hrannar eitthvað í ár eins og seinustu tvö árin. Hann hefur verið að gefa okkur geðgóð og töltgeng folöld. Hrannar verður til afnota á suðurlandi í sumar.
Það hefur verið gaman að fylgjast með Hrannari þessar vikurnar og stefnum við með hann í dóm í vor ef allt gengur eftir en hann er á 4 vetur. Meðfylgjandi myndir voru teknar af honum þegar að hann var að prufa völlinn.
Hreinn frá Eikarbrekku er einnig stóðhestur í okkar eigu sem verður 2 vetra í ár, hann er með 119 stig í kynbótamati. Hann er undan Hróð frá Refsstöðum og 1 v. hryssunni Festingu frá Kirkjubæ ( 8.22 ae ). Festing er undan Kjarval frá Sauðárkróki og Flugu frá Kirkjubæ sem er meðal annars móðir Fjólu frá Kirkjubæ. Hreinn er einstaklega vel gerður hestur, hann fór á ungfolasýningu um daginn og skoraði mjög vel fyrir byggingu. Síðan fór ekki alveg eins og við höfðum vonað þegar kom að því að dæma hreyfingarnar þar sem Hreinn fór mest á stökki en sýndi þó flotta takta á tölti og brokki þegar hann sýndi annað en stökk.
Hreinn er laus til útleigu í sumar.
Fyrir nánari upplýsingar um Hrannar eða Hreinn hafið samband við [email protected]